Monday, December 8, 2008

"I'm going to China!" "The country??"

Ég fékk að heyra langþráðan brandara í gær. Ég er búin að bíða eftir þessum brandara síðan ég komst að því að það eru til búðir út um allt Bretland sem selja einungis frosnar matvörur og frystikistur og heita iceland.co.uk.

"...and this is Anna. She is from Iceland."
"The store or the country?"

Ha ha ha.

Annars er lítið í fréttum nema að ég hef náð hápunkti letinnar. Ekki í lærdómslegum skilningi, ég er búin að lesa tvö heil leikrit yfir helgina, og er byrjuð á þriðja og jafnframt síðasta leikriti vetrarins. En ég hef hins vegar náð hápunkti letinnar, vegna þess að ég er ofsalega svöng, og það er lítið annað til nema tómatsósa, oststykki og ein eeeeldgömul kartafla. Og smá morgunkorn. Og poppkex. Er búin að éta hálfan pakka af poppkexi í dag.

En ég nenni ekki fyrir mitt litla líf að klæða mig og labba aaaalla leiðina niður í Select & Save. Þannig að ég ligg bara hér, les leikrit, og svelt. Það er ekki eins gaman að versla í matinn þegar maður fer einn :(

11 dagar þangað til að ég kem heim til Íslands!!

Kær kveðja frá Keele,
Anna Margrét

3 comments:

Anonymous said...

hehemm... Ég vil meina að ég! hafi toppi letina með því að vera ekki að læra.. liggja uppí rúmi, kalt undir sæng því glugginn er opinn en ég nenni ekki að loka honum, því ég þarf að standa upp, horfandi á Bold and the Beautiful því allt dvd er uppí hillu....

Anonymous said...

Iss...það er ekkert. Það er algjör þögn inni í herberginu mínu af því að Scrubs diskurinn kláraðist og mappan með DVDinu liggur á gólfinu við hliðina á rúminu mínu en það er svo mikil vinna að ná í hana.

...við erum mestu letihaugar í heimi!

Katrín said...

Ég veit fátt meira pirrandi en að heyra Kerry Katona segja með sínum ýkta breska hreim "that's why mums go to Iceland!"