Ég er með svo svaðalega ritstíflu að ég get ekki einu sinni bloggað. Ég reyndi það og ég kann ekki lengur að búa til setningar. Ég er semsagt að reyna að skrifa 2500 orða ritgerð, síðasta ritgerð ársins, og ég er svo hrædd um að gera hana illa að ég þori ekki einu sinni að byrja á henni, sit bara og les bækur og geri endalausar beinagrindur að ritgerð.

...svo er ég líka ennþá með smá seiðing í andlitinu. Þessi kinnholubólga ætlar ekki að fara :(
Vá hvað ég er tóm í hausnum. Get ekki einu sinni bloggað...Ég er svo innilega komin heim í jólafrí í huganum!
Verð...að halda...áfram...ritgerð...
Anna Margrét
1 comment:
ég skal skrifa ritgerð og þú mátt læra fyrir Breskar bókmenntir og taka prófið:D!!!
Post a Comment