Thursday, December 11, 2008

Stutt og laggott...

Krispy Kreme doughnuts...


...eru ástæðan fyrir því að bandaríkjamenn eru feitir.

Þetta er mögulega það besta sem ég hef smakkað. Algjör sykurbomba, og ég hefði ekki átt að borða þetta...en díses hvað þetta var gott á bragðið!!!

Annars er flensan (eða eins og ég kýs að kalla hana; Svarti dauði/Plágan/Fuglaflensan) komin í heimsókn og byrjaði ég daginn á því að sofa næstum yfir mig. Ég reyndi að opna augun og fattaði að ég gat eiginlega ekki opnað augun. Mér leið vægast sagt ömurlega, og það var mjög freistandi að liggja bara áfram upp í. En það er svo fyndið að mér finnst tímarnir hérna úti svo skemmtilegir að ég vil alveg endilega ekki missa af þeim, ekki einu sinni þegar ég er veik. Ég klæddi mig þessvegna í sokkabuxur, legghlífar, buxur, þrjá boli, ullarvesti, þykka úlpu, ullarhúfu og trefil og rölti áleiðis að Chancellors building. Þar keypti ég mér eitthvað ógeðslegt vítamínvatn sem heitir "Defence" með C og B12 vítamíni og settist inn í tíma. Ég var alltaf að sjúga upp í nefið og hósta og eitthvað en ég tók samt fullan þátt í tímanum og hann var rosa skemmtilegur. Hins vegar átti ég eftir að bíða í klukkutíma og mæta svo í annan tíma og eins mikið og mig langaði að fara, þá var ég ekki alveg að meika það...

Þannig að ég rölti heim, keypti mér kartöflu með smjöri og osti og svona krispy kreme doughnut, sem nemendurnir voru að selja fyrir eitt pund, og fór svo heim og borðaði smá. Það fór svona ágætlega í mig, ég er samt eitthvað slöpp í matarlystinni líka, en ég fór svo niður, í náttfötin og beinustu leið upp í rúm. Og hér ligg ég nú og vorkenni sjálfri mér. Með hausverk og stíflað nef og hósta og hálsbólgu. Og beinverki. En engan hita, eða allavega svo til engan, bara nokkrar kommur, sem er bara fáránlegt...

Og! Þetta gat ekki mögulega komið á verri tíma því annað kvöld er risa jólapartý í Students Union sem ég var búin að kaupa mér miða á, og á laugardaginn er ferð til London sem ég er mikið búin að hlakka til. Ég vil meina að ég sé bara með "man flu" sem er sjúkdómur sem herjar mestmegnis á karlmenn og gerir það að verkum að þeir margfalda öll veikindi með 100, þeas verða alltaf miklu veikari en þeim finnst þeir vera. Þessvegna hef ég verið að þrjóskast við að fara út og gera hluti og ekki taka verkjalyf og eitthvað, síðan ég byrjaði fyrst að finna fyrir einkennum um helgina. En ég verð held ég bara að sætta mig við það að ég er veik, leggjast upp í og vona að ég verði allavega orðin góð á laugardaginn...

Til vonar og vara bað ég krakkana í byggingunni minni um að banka á hurðina hjá mér ef ekkert þeirra minnist þess að hafa séð mig í 24 tíma :p Og nú...sofa! Reyna að sofa þetta kvikyndi úr mér...

Batakveðjur frá Keele,
Anna Margrét

P.S. Gummi Valur, mig dreymdi í morgunsárið að þú og ég værum að berjast við ringwraths úr LOTR og það var ótrúlega súrt, en á sama tíma ekkert smá töff! Gæti mögulega haft eitthvað með flensuna að gera samt...

2 comments:

Anonymous said...

There there little bunny

Anonymous said...

Láttu þér nú batna elskan, svo þú komist til Lundúnarborgar.

Kveðja, mamma