Tuesday, December 16, 2008

Uppdeit hið seinna...

Jæja....ég er búin að fara aðeins út og fá mér kókglas á Horwood Bar og spjalla við John og Charlotte og allt liðið, fékk að leika DJ og segja "jólasveininum" hvað mig langaði í í jólagjöf. Búin að hreinsa smá hugann og vonandi get ég nú tekist á við ritgerðina.

Vandamálið er þríþætt. (Joey had reasons. They were threefold. -Friends)

1.) Vídjóið virkaði ekki í skrilljónasta skiptið þessa önnina þannig að tíminn í dag fór í að ræða um prófið, sem coincidentally er ritgerðarpróf. Prófessor Mills eyddi öllum tímanum í að segja okkur hvað ber að varast þegar ritgerðir eru skrifaðar, reyndar í prófi, en margar af þessum reglum einskorðast svosem ekki við prófritgerðir. Ráðleggingar hans voru til dæmis að vera ekki að telja allt mögulegt til sem maður man eða getur sett inn í, vegna þess að ritgerðir eiga að vera að sanna kenningu, ekki upptalning á öllu sem maður kann. Önnur ráðlegging var að hafa ritgerðirnar ekki of langar, og koma ekki með efnisgreinar sem hafa ekki eitthvað augljóst með ritgerðina að gera. Rauði þráðurinn þarf alltaf að vera til staðar.
Þessi fyrirlestur hans hræddi svoleiðis úr mér líftóruna að ég þori varla að byrja. Í staðinn hef ég skrifað upp punkta eftir punkta og svo verið að sigta úr hvað skiptir máli og hvað ekki. Í það hefur allur tíminn minn farið í kvöld.

2.) Pæling mín bak við ritgerðina er að sýna fram á það að Disney fyrirtækið græddi eiginlega ekkert á "töfrunum" þeas teiknimyndunum, en lifðu á varningi og neytendum sínum. Ég vil sýna fram á það að þeir nýttu sér börn sem neytendur, og foreldra þeirra í gegn um þau. Ég hef rosalega marga punkta bak við þetta til að skrifa um. Hins vegar vil ég á sama tíma benda á að það var bráðnauðsynlegt fyrir þá að hreinsa upp teiknimyndirnar og allt svoleiðis (samanber grimmsævintýrin til dæmis og H.C.Andersen). Þetta var mjög mikilvægt í ljósi þess að "Hvít Miðstéttar-Ameríka" var markhópur þeirra og þá sérstaklega börn. Hins vegar er ég nú búin að átta mig á því að þetta eru alveg tvö ritgerðarefni. Ef ég skrifa um eitt þá er ég hrædd um að ritgerðin verði teygð og missi svolítið marks (sbr að setja ekki óviðeigandi efnisgreinar inn í). En það er eiginlega engin leið að tengja þessi tvö efni á fullnægjandi hátt í gegn um alla ritgerðina.

3.)Ég er búin að gera "stutta ritgerð" til að "kynna" þessa ritgerð (afsakið gæsalappirnar en ég er ekki vön svona vinnubrögðum). Þar skrifaði ég rosalega flottan inngang sem snerti á því sem ég vil helst skrifa um, það er að segja varninginn og börn sem neytendur. Mig langar svo að nota uppbygginguna sem ég notaði þar, en ég veit ekkert hvernig reglurnar eru um það. Kannski telst það sem "ritstuldur". Eða allavega svindl. Þannig að ég hef verið að reyna að skrifa nýjan inngang, það hefur ekki gengið mjög vel. Hann bliknar alltaf í samanburði við gamla flotta innganginn. Og þar sem ég þjáist af sjúkdómi sem lýsir sér þannig að mér er lífsins ómögulegt að byrja á meginmálinu og setja svo inn innganginn seinna, sit ég hér með bullandi ritstíflu og skrifa upp setningu eftir setningu og stroka svo út. Er búin að byrja ritgerðina örugglega fimm sinnum, en er komin með 150 orð af 2500...
Ég er, btw, búin að skrifa 1300 orð af glósum. Bilun.

Þetta er það sem ég er með núna, en er að fara að stroka út;

Consumption is a part of our everyday lives. In today’s fast-paced society we are not unlikely to come in contact with products and goodies at least once every day. Most of the things we do for entertainment, food and communication are closely linked to corporate consumption. Certain brands have become household names in the course of time, one of which is the Disney phenomenon. It quickly bec

The Disney company started out by created short animated movies. Over the years they moved on to marketing and merchandising, full-feature movies and theme parks and in today’s world you will have to go pretty far to find a society totally unfamiliar with Mickey Mouse and Disney. The movies were expensive, and didn’t generate a lot of profit, but the merchandise was cheap to produce and

Mér finnst þetta drasl. Inngangurinn sem ég skrifaði á undan þessum var svo lélegur, og setningarnar svo stuttar og asnalegar að hann leit út eins og símskeyti. Þetta gengur voðalega illa hjá mér :p

Þið sjáið kannski af hverju ég er í vandræðum. Það sem meira er er að glósurnar mínar eru mikið setningar beint upp úr bókunum og svona smá punktar, og ég er ansi hrædd um að þessi ritgerð verði bara endursögn á tveimur köflum úr skólabókinni minni....ekki gott.

En nú ætla ég að reyna að tækla þessa ritgerð. Ég verð. Get ætla skal, er það ekki?

Markmið mitt er að semja inngang í kvöld. Ég hef svo tvo heila daga til að hafa áhyggjur af hinu :)

Kær kveðja frá Keele,
Anna Margrét

4 comments:

Anonymous said...

samkvæmt þessu þá þarf ég að endurskoða aaaallar ritgerðir sem ég hef nokkurn tíman skrifað...o ó



with bunny rabbit ears

Sissa said...

Já, ég tek undir það sem Daði segir, ef ég hefði átt að fara eftir þessu hefðu ritgerðirnar mínar þurft á alvarlegri endurskoðun.

Hinsvegar verð ég að segja það, að þessir textar sem þú segist vera að fara að eyða eru svo hnitmiðaðir og flottir að ég er öfundsjúk (þ.e. vildi að ég hefði látið mér detta svona í hug á "sínum" tíma og verið ekki nógu sátt). Annars kannast ég við þetta vandamál, ritstífla. Það sem bjargaði mér oft var að fara í "stream of conciousness" og skrifa allt sem mér datt í hug án þess að ritskoða mig strax. Leggja tölvuna svo frá mér í smá tíma, fara á salernið, í sturtu, eða jafnvel skella einum Friends þætti í (eða einhverjum sjónvarpsþætti) og hugsa ekkert um það sem ég var að skrifa. Líta svo á það og velja bestu partana úr og skrifa út frá þeim...

Annars vil ég bara segja, gangi þér vel :D

Anonymous said...

Iss þú ferð létt með þessa ritgerð, svo er það bara "Home Sweet Home":)

Kveðja, mamma

Katrín said...

Ég sé að efst á óskalistanum þínum hlýur að vera Trivial Pursuit DISNEY spilið sem var að koma út á klakanum ;)