Það er nú ekki mikið af mér að frétta í dag. Ég tók fyrsta prófið mitt í dag, það var mjög spes. Prófið var haldið á efri hæðinni í kapellunni, eða með öðrum orðum á opnu lofti á efri hæðinni í kapellunni. Nógu stressaður var maður fyrir þótt maður þyrfti ekki að díla við lofthræðslu í leiðinni. Prófin þurftu líka að vera kyrfilega merkt, í efra vinstra horni forsíðunnar, í efra hægra horni forsíðunnar og í neðra hægra horni forsíðunnar. Kom mér á óvart að maður væri ekki bara látinn skrifa þetta með stórum svörtum túss yfir alla forsíðuna :P
Prófið sjálft var hins vegar ekkert svo þungt, ég strikaði yfir nokkrar spurningar, en hafði á endanum 5-6 spurningar að velja úr og átti bara að svara 2 svo það var úr nógu að velja. Endaði með tvö efni, annars vegar um það hvernig Disney hefur tekist að sýna fortíðina fyrir útlendingum (vá hvað það er erfitt að íslenska þetta...) og hins vegar hvort að Disney fyrirtækið sé búið að þróast frá því að vera bara einfalt media company yfir í "aðfangastað" eða "resort". Svolítið flókið að útskýra þetta fyrir fólki sem hefur ekki verið að sitja tímana og læra námsefnið, en þetta voru þau efni sem ég vissi slatta mikið um þannig að ég gat skrifað fullt af punktum, þrjár heilar þéttskrifaðar blaðsíður um fyrra efnið og tvær um seinna. Nú sit ég reyndar og naga mig í handabökin yfir því að mér fannst skriftin mín svolítið ólæsileg þarna í lokin, enda komin með mega krampa í hendina, og ég er svo hrædd um að þeir neiti að taka við prófinu. Líka að mér fannst ég vera að koma með marga áhugaverða punkta, og tengja þá vel saman, en það er alltaf séns á því að ég hafi ekki komið því frá mér nógu vel.
En, það er víst lííítið hægt að gera í því núna. Búin að skila, og þá er bara að krossa allar tær og putta og vona hið besta. Einkunnir ættu að berast mér...tjah...vonandi á þessu ári ;)
Dagurinn eftir það hefur farið í spennufall og meira spennufall, enda var þetta meira stressandi prófið, ég er búin að sjá hitt og veit nákvæmlega við hverju er að búast þar, er búin að éta og sofa og sofa og éta, og horfa á bíómyndir og læra. Svona til skiptis. Versta er að mér finnst ég ekkert smá löt. Sem ég veit að er ekki alveg satt, vegna þess að ég gerði alla beinagrindina að ritgerðunum yfir jólin, og veit alveg hvaða punkta ég ætla að gera, og þótt ég skrifi upp ritgerð á ég aldrei eftir að muna hana orðrétt, ég verð hvortsemer að skrifa upp úr mér. Og ég er komin með rúma blaðsíðu, í word NB...pínkupons letur, fyrir hvora ritgerðina. En samt líður mér einhvern veginn eins og ég eigi að vera á bókasafninu, að skrifa ritgerðir og tjekka facts og læra utanað. Þótt ég viti að það skiptir engu máli. Mér finnst ég bara svo löt, ég er ekki vön að byrja að læra svona snemma, er ekki vön að vera búin að læra tveimur dögum fyrir próf. Þess vegna ligg ég bara í mestu makindum og horfi á Bring it On núna, og er þjökuð af samviskubiti. Maður getur verið svo asnalegur stundum.
Annars hef ég ákveðið að á föstudaginn, eftir prófið mitt, ætla ég inn í Newcastle og fara í hádegisbíó. Veit ekki ennþá á hvað, eitthvað skemmtilegt bara, en ég ætla að fara og éta Ben&Jerry's ís í síðasta sinn hérna úti, og fá mér popp í risa dollu og bara slappa af. Ein ef með þarf, fyrst þetta verður um miðjan daginn, rölta svo aðeins um Newcastle, kaupa ÓGEÐSLEGA mikið af súru lengjunum úr Mr Simms, og fara svo heim að pakka. Svo eru tveir lokadinnerar á planinu, einn á föstudag og einn á sunnudag (semsagt, allir skiptinemarnir saman, og svo blokkin mín) og svo, ef John og Charlotte hafa ekki bundið mig, kem ég til með að eyða helginni í að pakka, mánudeginum í að ganga frá herberginu mínu og fá 150 pundin mín til baka, og krossa svo alla putta og allar tær aftur og vona að ég sleppi í gegn með alla yfirvigtina mína á leiðinni til baka. Held ég kaupi mér bara bækur á flugvellinum,þegar ég er komin í gegn inn í fríhöfnina, hehe.
Nú segi ég góða nótt, ætla að reyna að vera dugleg að læra á morgun, siðasta prófið er snemma á föstudagsmorguninn :)
Kær kveðja frá Keele,
Anna Margrét
Thursday, January 15, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

3 comments:
ég krossaði tærnar og fékk sinadrátt....átsj
Alltaf erfitt að skila svona ritgerðarprófum! Gangi þér svo vel á morgun:D Og NJÓTTU síðustu daganna
Gangi þér vel á morgun/eftir :D
Post a Comment