Friday, November 28, 2008

Námsmanna- og kreppukvöldmatur.


Hráefni:
1 heil, ófryst, margharitu pizza frá Morrisons
Álegg eftir smekk
Blandað grænmeti eftir smekk
1 ávöxtur, einnig eftir smekk

Aðferð:
  • Forhitið ofninn á 200 gráður
  • Skolið grænmetið og skerið niður.
  • Fjarlægið plastumbúðir utan um pizzuna.
  • Fjarlægið einnig frauðplast sem er undir pizzunni (trúið mér, það er ekki gott að setja það með inn í ofninn...)
  • Setjið áleggið ofan á pizzuna og pizzuna inn í ofn.
  • Blönduðu grænmeti komið fyrir (á afar listrænan hátt) á disknum
  • Ávöxtur skorinn niður eftir smekk, og komið fyrir á disknum ásamt grænmetinu.
  • Pizzan tekin úr ofninum, þegar osturinn er bráðinn, skorpan búin að taka á sig fallega gullinn lit, og áleggið er orðið "eldað".
  • Skorin til helminga og sett á diskana.
  • Borðið með bestu lyst. Kvöldmaturinn fer einkar vel með Sprite og Fanta, og borðist helst á meðan horft er á Scrubs, Gilmore Girls eða Friends.
Í veikri tilraun til að borða hollari mat og sjá til þess að grey Daði borði ekki aðra hverja máltíð á McDonalds meðan hann er hjá mér, höfum við í sameiningu fundið upp hinn fullkomna kvöldmat. Hann er ódýr, fljótlegur og við getum borðað þetta 3-4 sinnum í viku ef við þurfum, bara með smá breytingum. Til dæmis er ekki alltaf sama áleggið, eða sama grænmetið, eða sami ávöxturinn. Þetta hefur mest verið sveppir og stundum skinkubréf, en ég er mjög spennt fyrir því að prufa að steikja hakk á pönnu og setja svo á pizzuna áður en hún fer inn í ofn. Í fyrradag vorum við reyndar með spaghetti og nautahakk með tómatsósu og rifnum osti og hindber, og í gær var líka pizza, en með öðruvísi grænmeti, og mandarínu. Gengur ofsa vel hjá okkur að borða semi-hollt, þýðir ekki annað ;)

Annars er þetta búinn að vera ofsa góður dagur. Við létum 3 vekjaraklukkur hringja klukkan 10:30 og okkur tókst að snúsa með þrjár vekjaraklukkur í heilan klukkutíma. Það sýnir metnað til þess að sofa yfir sig. Við vorum samt svosem ekkert að fara neitt, við ætluðum bara að vakna snemma til að skila ritgerðunum okkar, en klukkan hálf tólf hnippti Daði í mig og sagði "jæja, vakna, við ætlum að skila ritgerðunum okkar." Ég er víst ekkert ofsalega mikil morgunmanneskja, vegna þess að ég svaraði á móti "Það þýðir ekkert að vekja mig og gera svo ekkert sjálfur". Algjörlega upp úr þurru. Þetta bætist í safnið hans af undarlegum hlutum sem ég hef sagt við hann þegar hann er að vekja mig, en hingað til hef ég líka sagt "Ohhh....þú liggur svo asnalega", þegar það var eitthvað erfitt fyrir mig að koma mér fyrir, og svo einu sinni þegar Daði vaknaði sængurlaus um nóttina og spurði hvort hann mætti fá sæng svaraði ég "Þú *ert* með sæng! Þú átt að byrja um *meiri* sæng." Um daginn sagði ég líka "Já vá, þetta er rosalega flott," af því mig hafði dreymt að hann væri að sýna mér eitthvað. Þetta verður allt saman að sjálfsögðu notað gegn mér það sem eftir er ævi minnar.

Við gerðum heiðarlega tilraun til að skila ritgerðunum en okkar ágæti kennari var ekki búin að setja inn gluggann fyrir okkur til að skila í. Ég gerði líka heiðarlega tilraun til að ná í Kate og Triciu, sem svöruðu ekki, og til að fara í sturtu, en það var ekkert heitt vatn í húsinu. Eftir það ákváðum við að okkur langaði ekki til að hanga í herberginu allan daginn þannig að við ákváðum að fara inn í Hanely í Potteries Market sem er risastórt shopping mall. Egill kom með okkur, og saman tókum við strætó inn í Hanley.

Mér finnst skammarlegt að játa þetta, en ég hef ekki farið mikið inn í Hanley, aðallega vegna þess að það tekur 40 mínútur að taka strætó þangað og þetta er ekki svæði sem maður ráfar mikið einn um á. Ég vissi augljóslega ekki af hverju ég er að missa, en það fyrsta sem blasir við þegar maður labbar út af strætó/rútustöðinni og upp götuna er risastór verslunargata, með mörgum litlum götum sem liggja út frá henni og jólaskreytingum út um allt. Við sáum m.a. risastóra Morrisons, stærri en er í Newcastle, og svona Nexus/nördabúð. Svo var KFC þar líka! En þeir áttu ekki poppkjúkling :( Aðeins lengra niður götuna er svo Potteries Market mollið.

Utan frá virðist það ekki vera ýkja stórt, en það slær Smáralindinni alveg út held ég. Það er á fjórum hæðum alls og skartar meðal annars þriggja hæða Debenhamsbúð, stórri Next búð, ristastórri New Look búð, La Senza, Lush og Body Shop. Þar voru líka búðir sem eru ekki til heima eins og Tie Rack, og stór Poundland búð. Og! Disney Store! Svo var rosa kósý kaffihús þarna inni, sem seldi risastórar smákökur sem er skrifað á, hvaða texta sem maður vill, með icing, og minni smákökur, sumar á prikum eins og sleikjóar. Svo voru líka bestu möffins sem ég hef smakkað þarna, heitar, heitt súkkulaði og ís. Ég fékk mér eina mintukúlu, strákarnir fengu sér báðir möffins og heitt súkkulaði og við settumst á bekk og mauluðum það. Ég hef klárlega verið að missa af miklu í þessa tvo mánuði.

Við byrjuðum reyndar illa, vegna þess að ég lenti í manneskju sem var ákveðin að selja mér óróa. Hún var með bás á miðri göngugötunni inni í mollinu, með alls konar útskornum óróum, sem voru mjög fallegir. Ég gerði þau mistök að stoppa í eina mínútu til að skoða og hún læsti sig á mig um leið. Fyrst vildi hún að ég prufaði að halda á óróanum til að finna að þetta væri ekki úr plasti. Svo vildi hún að ég segði henni hvaða órói mér þætti fallegastur. Ég sagði henni það og hún tók hann niður og byrjaði að sýna mér hvað hann er fallegur þegar hann snýst, líka langt í burtu. Svo vildi hún að ég prófaði að snúa honum. Til að losna við hana (af því ég var orðin freeekar pirruð) ákvað ég að spurja hvað þeir kostuðu mikið. Hún sagði 25 pund (5000 krónur) og ég sagði "Mmhmm...they are very nice. Maybe I will come back later," og byrjaði að labba í burtu. Þá bauð hún mér hann á 18 pund (3600 krónur). Ein geðveikt ákveðin að selja mér. Þá sagði ég bara pent "No thank you" og labbaði í burtu. Ótrúleg frekja í sölumönnum.

Eftir þetta löbbuðum við framhjá Santa's Grotto, sem er svona hálfgert jólaland, nema bara lokað af, og þar var jólasveinninn. Okkur Daða langaði mikið að fara inn og sjá svona "alvöru" molljólasvein sem lætur krakkana segja sér hvað þau vilja í jólagjöf, en okkur fannst ekkert rosalega kúl að standa í röðinni með litlu krökkunum. Við fórum í staðinn inn í Disney Store og eyddum örugglega hálftíma í að skoða allt dótið þarna inni. Það er allt fullt af alls konar hlutum með Disney fígúrum á, eiginlega bara jú neim it.

Það er mjög magnað að fara í svona moll, sérstaklega í Disney store, eftir að hafa verið í Disney áfanganum. Þar er mikið rætt um hvernig fyrirtækið fúnkerar, með tilliti til starfsmanna og gesta, og sérstaklega sölumennskan. Okkur Agli þótti einstaklega merkilegt að sjá að afgreiðslustúlkan var í bol sem á stóð "Cast Member". Þetta er ekki óeðlilegt fyrir Disney fyrirtækið, vegna þess að þeir eru með sérstakan "university" sem menntar allt starfsfólk, allavega sem tengist görðunum, og m.a. er fólki kennt sérstakt "Disney speak". Starfsfólk er aldrei starfsfólk heldur "Cast members". Kúnnar eru ekki kúnnar heldur "Audience". Starfsfólkinu er kennt að vera yfirnáttúrulega kátt og má aldrei fara úr "hlutverkinu" t.d. með því að notast við aðrar setningar en koma fram í "scriptinu". Við höfðum einmitt verið að velta fyrir okkur hvort starfsfólkið í verslununum væri eins þjálfað, aðallega vegna þess að afgreiðslustúlkan var að raða í hilluna sem ég var að skoða í og baðst innilegrar afsökunar og færði sig fyrir mig!, þegar við sáum þetta aftan á bolnum hennar. Mjög athyglivert.

Disney store stendur líka út úr frá öðrum búðum í kring. Það er alveg merkilegt. Moll eiga það til að vera svolítið pastellituð, hvít og málmlituð, og búðir eru oftast hvítar með hvítum innréttingum. Disney búðin er skærrauð. Þar að auki er stór skjár inni í hverri búð sem auglýsir það nýjasta frá Disney, aðallega High School Musical mér til mikillar mæðu (ég er komin með ógeð á laginu) og hávær tónlist heyrist úr hátalarakerfinu. Vörunum er skipt niður bæði eftir aldri, kyni og karakterum. Það er heill veggur með prinsessubúningum, heil hilla af mýkstu böngsum í heimi (öllum mögulegum karakterum), skólavörur, fatnaður, krúsir, you name it. Það voru meira að segja mjúkir náttsloppar og náttföt í fullorðinsstærðum. Og mig langaði í alla sokkana í búðinni. Við rápuðum um, lékum með dótið og skoðuðum jóla-Disney vörur.

Samt er það kannski bara að maður er orðinn meðvitaður um peninginn sinn í kreppunni, eða af því að ég er búin að vera í þessum kúrs um neyslu, en ég var voða róleg og verslaði ekki neitt. Skoðaði bara jólagjafir. Það var samt pínu erfitt inni í HMV, þar sem mig langaði í Desperate Housewifes 3 og 4, Buffy seríu, síðustu Ally McBeal seríuna, fullt af DVD myndum og allavega tvo leiki. Kannski er ég bara orðin svona nísk, en ég allavega keypti ekki neitt. Rosa dugleg. Við fengum hins vegar alveg nokkrar jólagjafahugmyndir, sem við getum vonandi keypt á morgun þegra við förum í ENNÞÁ STÆRRA moll í Manchester :P Þar er líka Disney store og Debenhams og eitthvað fleira :) Leggjum í hann klukkan 8 á morgun, úúúff. Við verðum nú slatta tíma í því molli, en vonandi náum við nú að sjá eitthvað meira af Manchester heldur en bara mollið :P Ég verð allavega með myndavélina á mér. Reyni að taka einhverjar myndir og setja hérna inn.

Þetta var samt voða vel heppnuð ferð, og við sáum margt fallegt, og Hanley er rosa fallegur bær, ég fer pottþétt þangað aftur. Eftir verslunarferðina fórum við í strætó, og hittum Kate sem hafði verið í sama molli, að reyna að senda okkur sms. Hún hafði keypt allar jólagjafirnar sínar, og var mjög sátt. Við stoppuðum svo í Newcastle á leiðinni heim og keyptum þessa glæsilegu máltíð, ásamt vörum til að baka um helgina (ætlum að gera lakkrístoppa, og reyna við að gera hnetusmjörskökur með haframjöli og súkkulaði...sjáum til hvernig það heppnast) og svo meiri Magnum fyrir mig. Allt í allt borguðum við 2000 krónur, sem er ekki slæmt fyrir svona miklar vörur :) Og nú verður bara farið snemma að sofa af því við þurfum að vakna snemma til að komast til Manchester :)

Jæja, komið gott í bili, skrifa meira á morgun kannski, frá Manchester.

Kær kveðja,
Anna Margrét og Daði

No comments: