Í Renaissance tíma í morgun lagðist miðaldra kennari minn upp á borð til að sýna okkur stellingu á fígúrum sem koma fyrir á mynd inni í kirkju í heimabæ hans. Hann kraup líka á gólfinu og lagðist svo loks undir borðið með orðunum "...I am too big for this..."
Þegar tíminn var að klárast og ég var að basla við að klæða mig í jakkann minn áttaði ég mig allt í einu á því að ég hafði gleymt einni mikilvægri flík þegar ég hafði verið að klæða mig. Um morguninn þegar ég vaknaði allt allt of sein, og mygluð og dauðþreytt hafði ég hugsað með mér að ég yrði að finna brjóstahaldara. Svo fór ég að gera eitthvað allt annað, og endaði á því að henda mér í bol, og yfirhöfn og út. Það var ekki fyrr en á þessum tímapunkti þegar ég áttaði mig á því að ég hafði einhvern veginn hoppað yfir það stig, og farið út algjörlega brjóstahaldaralaus.
Undarlegur morgunn. Þarf að hætta að drekka svona áður en ég fer að sofa ;)
Í orðum Loralai Gilmore;
Anna Margrét
Tuesday, November 18, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

No comments:
Post a Comment