Thursday, November 20, 2008

Það eina erfiða...

...við að drekka ekki áfengi, er það að þegar kemur að mikilvægum stundum, sem maður ætti að skála, getur maður ekki skálað í neinu nema sprite-i.

Það erfiða við að vera námsmaður sem býr erlendis er þegar kemur að því að skála í sprite-i, á maður ekkert nema tekrúsir til að notast við.

En ég er ekki frá því að sitjandi í náttfötunum, í litlu herbergisholunni minni í Keele (hún var þó allavega hrein) með sprite í tekrúsum, þá hafi þetta samt verið fullkominn endir á fullkomnu kvöldi.






Eintóm hamingja.

Kær kveðja frá Keele.
Anna Margrét og Daði

3 comments:

Sissa said...

Æ, en sæt færsla. Má maður segja "til hamingju"???

Hrafnhildur said...

Ég er nú hrædd um það: TIL HAMINGJU!!! Sérstaklega sætt að sjá kindereggin þarna líka...:)

Sissa said...

Þá segi ég það líka, fyrst Hrafnhildur sagði það: TIL HAMINGJU!!!! :o*

Já, mér fannst kindereggin geggjuð þarna líka:D