Tuesday, November 11, 2008

Gullmoli

Í morgun vaknaði ég kl. 12, kúrði til 13 og lagði svo af stað í smá leiðangur. Ég breytti evrunum mínum í pund og fór í finance offices og fékk það staðfest að millifærslan mín hefði gengið í gegn 5. nóvember. ég borgaði 200 pund til viðbótar og ákvað svo að skella mér á bókasafnið að leita að heimildum. Ég reyni að fara á ca 2 vikna fresti í svolítið massíva ferð á bókasafnið að leita að mörgum titlum, ljósrita þegar það eru kaflar og fá bækur lánaðar. Í dag var ég samt töluvert lengur en ég hef áður verið, eða frá tæplega 2 til rétt rúmlega 4. Það er örugglega lengsti tími sem ég hef nokkurn tímann eytt á bókasafni án þess að vera að lesa eitthvað.

Ég elska bókasöfn. Sérstaklega bókasafnið í Keele. Bókasafnið í Keele er mögulega uppáhalds staðurinn minn á öllum campusnum. Það er gullfallegt utan á, á þremur hæðum með mörgum mörgum deildum. Flestar bækurnar eru eldgamlar, og þú getur fundið bækur um ALLT þarna inni. Þetta bókasafn er þannig að þú leitar ekki eftir höfundum, þú ferð í bókasafnstölvu, slærð inn leitarorði, þá annað hvort höfund, titil eða innihald og færð upp lista af bókum. Hver bók er með ákveðið númer, kerfið er reyndar mjög flókið finnst mér, lengstu bækurnar eru kannski PT8116.E6.P2 eða eitthvað svoleiðis og þá þarf maður að finna PT8116 og leita svo eftir næsta staf í stafrófinu. Þá er bókin kannski í rekka sem er merktur PT7560-PT9000 og maður leitar þar. Þetta tekur langan tíma en er voða gaman. Bókasafnið sjálft, þeas main collection er í þremur stafrófshlutum, og svo er sér "Short time" lánadeild og öll tímaritin eru í risastórum tölvustýrðum rúllurekkum í kjallaranum.

Eins og áður sagði er hægt að finna bækur um allt þarna inni. Fyrir ritgerðina mína í Disney kúrsinum þurfti ég að finna upprunalega Litlu Hafmeyjar-ævintýrið. Ég sló Andersen, H.C. upp í bókasafnstölvunni og fann nokkrar bækur um kallinn og svo ævintýrabækurnar. Allar voru þær í rekka fyrir PT8116 svo ég fór þangað og hóf leitina að H.C.Andersen bókinni. Nema hvað að allt í einu staðnæmdust augun á bók á tungumáli sem ég kannaðist nú aldeilis við. Laxdæla Saga. Við Egill drógum fram bókina og hún reyndist vera á frummálinu, ekki ensku. Við nánari athugun kom í ljós að við vorum komin í "Skandinavíska rekkann" vegna þess að þarna mátti finna alls konar Íslendingasögur, Egils sögu, Njálu, Snorra Eddu, Konungabók, alveg nokkrar hillur af þeim og svo bækur á ensku sem fjölluðu um íslendingasögurnar. Þaðan tók svo við norræn goðafræði og voru þónokkrar bækur um hana, og svo var ég allt í einu farin að lesa höfundanöfn eins og H.C.Andersen og Karen Blixen. Ekki amalegt. Þetta kætti okkur ólýsanlega, þótt að rekkinn sjálfur væri hálf ræfilslegur, eiginlega bara hálfur, einhvers staðar útí horni á eftri hæðinni. En við tækifæri ætla ég að fara þangað aftur og sjá hvort það eru einhverjar fleiri íslenskar bækur, eða bækur eftir Íslendinga, það væri gaman.

Annars fann ég loksins bókina sem ég var að leita að og ég vildi bara deila henni með ykkur af því hún er gordjöss. Ensk þýðing á ævintýrum H.C. Andersen og fremst í henni stendur "The following pages contain a complete collection of the Fairy Tales of Hans Christian Andersen which are considered suitable for young people, carefully translated and revised, with all obscure passages rendered intelligible to the English reader." Þetta ætla ég að nota sem quote í ritgerðina mína, enda alveg stórkostlegt að það sé búið að breyta ævintýrunum svo þau séu við hæfi enskra lesenda. En hér kemur bókin semsagt;

Framsíðan. Hún er eeeeldgömul og blettótt þarna í hægra horninu.

Kjölurinn með sama skreytingaformi.

Fremsta síðan. Merkt University of Keele og gamla stimpilkerfið.

Og öll ævintýrin eru myndskreytt.

Þetta bókasafn er algjört gull. Ég gæti farið þangað í frítíma mínum bara til að rölta um og finna mér einhverjar áhugaverðar bækur. En nú er því miður kominn ritgerðartími og ég þarf að hefjast handa.

Kveð í bili, skrifa meira fljótlega.
Anna Margrét

1 comment:

Anonymous said...

Ég vildi að ég gæti komið með þér á bókasafnið, það er örugglega æðislegt.

Góðar kveðjur, mamma