Friday, October 3, 2008

Nokkrar myndir.

Fyrir þá sem hafa ekki facebook, þá eru hérna nokkrar myndir. Fyrir hina sem hafa facebook þá eru miklu fleiri myndir þar inni.
John, einbeitningin uppmáluð að búa til pönnsur á tveimur pönnum fyrir okkur.

Allir í náttfata-crépes partýji. Ariane, Tricia, Kate, Guy og Rob.

Kate á gólfinu í náttfötunum sínum. Voðalega krúttleg.

Horwood barinn. Blokkin mín er þarna til vinstri. Glugginn minn snýr út að Horwood bar.

Bókasafnið!!! Svo fallegt!

Svona leiðarvísar eru út um allt í Keele.

Keele hall! Ofboðslega falleg bygging, var upprunalega ættaróðal (þeas. einhver bjó þarna í gamla daga!) en var keypt upp af Keele og hýsir nú meðal annars veitingastað. Ég fór þarna inn um daginn til að ganga frá skráningunum mínum og þetta er rosalega flott bygging.

Allt umhverfið þarna er svo flott og trén svo breið og stór.

Keele Hall séð frá hinni hliðinni, framhliðinni.

Annars hefur ekki mikið gerst. Ég svaf til 12 í gær og mætti svo í renaissance tímann minn. Þessi áfangi verður mjög auðveldur. Mæting á fyrirlestra er optional, en þar er mikil bakgrunnsvinna í gangi og það er sniðugt að vera duglegur að mæta þangað. Þeir eru tvisvar í viku. Einu sinni í viku hittast svo minni hópar, svokallaðar Tutorials, og þar förum við ítarlega ofan í hvert verk sem við erum að vinna með hverju sinni og ætlast er til að við tjáum okkur í þeim tímum. Upprunalegi hópurinn er svona ca 16 manns, svo ég býst við að tutorials séu ekki fleiri en 5. En það verður örugglega bara fínt. Matið á áfanganum er svo þannig að ég skrifa fyrst tilraunarritgerð, 1200 orða, bara svona til að kennarinn geti metið hvar við stöndum. Hún telst ekki með í lokaeinkunn áfangans en ég fæ samt einkunn fyrir hana. Svo skilum við 2000 orða lokaritgerð sem er samanburðarritgerð á Shakespeare sonnettu og annars konar sonnettu frá sama tímabili sem gildir 50% af lokaeinkunn. 5% mætingareinkunn í Tutorials er líka inni í lokaeinkunninni og síðast en ekki síst, 45% prósenta lokapróf sem er svokallað "séð" próf. Þeas, ég fæ prófið með mér heim í jólafríinu og má eyða jólafríinu í að velja mér tvö svör sem ég ætla að taka í lokaprófinu. Engar spurningar verða teknar út, svo ég get verið viss um að fá að taka það sem ég vel mér. Þetta finnst mér alveg stórmerkilegt og ég hef engar áhyggjur af þessum áfanga, er viss um að hann á eftir að ganga vel.

Eitt finnst mér samt mjög sérstakt og það er að hér úti, ef þú færð einkunn sem er 30% eða yfir þá ertu búinn að ná. Ef þú færð ca 45-60% ertu bara í fínum málum. Ef þú færð 60-69% ertu góður nemandi og það er afskaplega sjaldan sem gefin er hærri prósentutala (70-90%) en þá ertu mjög mjög góður nemandi. Þetta verður eflaust mjög sérstakt þegar ég fæ fyrstu einkunnina mína til baka, sérsatkega ef ég verð í 45-60%. Undarlegt að hugsa til þess að fá 5 sé bara nokkuð gott. Ég stefni þó að sjálfsögðu að því að vera í 60% eða ofar, en við eigum eftir að sjá hvernig það á eftir að ganga. Sem betur fer þá eru einkunnirnar hér úti ekki reiknaðar inn í meðaleinkunnina í HÍ (aðallega vegna þess að það væri of flókið) þannig að allt yfir 30% er nóg fyrir mig. En að sjálfsögðu langar mig að vera í 60% og ég skal vera þar.

Annars hef ég lítið gert. Það er að verða svolítið kalt hérna úti, sem er undarlegt vegna þess að hér er allt ennþá grænt. Ég horfði á tvo íkorna slást í dag sem var svoldið fyndið. Við fórum aftur út að borða á Hungry Horse, og ég fékk mér fish & chips sem var svona la la. Góðar franskar en fiskurinn er betri heima. Ég fór líka í náttfata-crépespartý í gærkvöldi þar sem bara ég, Kate og Tricia vorum í eiginlegum náttfötum (Kate var í svörtum, Tricia í grænum og ég í bleikröndóttum! Hardcore sko). John stóð sveittur og gerði crépes eftir pöntunum og enn á ný stal ég úr eldhúsi Guy og Egils, í þetta skipti sykri, frá einhverjum saklausum nemanda sem var fjarri góðu gamni. En pönnukakan mín var rosalega þykk, og rosalega góð. John og Guy eru líka búnir að uppgötva Kebabfyrirtæki sem sendir hvert sem er a campusnum til 3 um nóttina og ég held að þeir haldi þessu fyrirtæki á floti. Þeir eru kebabkreisí og elska að "order in" eins og þeir kalla þetta. Þetta er samt því miður sá allra sveittasti matur sem ég hef á ævi minni séð og mér finnst hann ekkert sérstaklega girnilegur. En þeir elska þetta. John pantaði til dæmis klukkan tvö í nótt og sat svo á gólfinu inni hjá Kate og hámaði þetta í sig með góðri lyst.

Við John, Tricia og Kate fórum heim til Kate og fengum okkur smá rauðvín (sans ég) og kebab (sans ég aftur) og horfðum á einhverja kanadíska mynd sem heitir "the pathfinder" og gerist að hluta til í virki í Kanada þar sem Kate vinnur sem eins konar leiðsögumaður. Kate og Tricia fengu heimþrá og við hlógum yfir asnalega franska hreimnum þar til við sofnuðum. Tricia og John röltu heim í HollyCross og ég fékk að gista hjá Kate þar sem ég vildi ekki labba ein heim klukkan 3 um nótt þegar það voru partý í gangi alls staðar. Við náðum að sofa til 12 og ég eyddi svo deginum í að éta nammi og horfa á Gilmore Girls og borða heita kartöflu með smjöri og osti frá Harvey's (uppáhaldsmaturinn minn, ódýrt líka...). Ég tók svo nokkrar myndir (sem sjást hér að ofan) og endaði svo í súpupartýji í eldhúsinu hennar Ariane. Kate bjó til kjúklinga og grænmetissúpu og ég á smá afgangs í frystinum hérna heima. Mmmmnammigott. Ég held að ég eigi eftir að kunna að elda smá þegar ég kem heim af því ég hangi alltaf yfir Kate og John þegar þau eru að elda, þannig lærir maður :)

Nú sit ég hér í herberginu mínu og nýt þess að herbergisfélagan er í partýji og ég hef netið út af fyrir mig. Ég er að reyna að finna út úr öllu þessu með mig og Daða. Okkur langar gjarnan að vera eina nótt í viðbót inni í London, þar sem ég er bara með einn tíma á mánudegi og það er vídeó-viewing tími, gæti sleppt honum, ekki talin mæting þar...Og það væri voða kósý. En við eigum ennþá eftir að finna út úr gistingunni. Eins og krónan er núna er dýrt að vera hérna úti, og gisting fyrir okkur tvö í Hawthorns guest house kostar 35 pund nóttin. Yndislegu skiptinemarnir mínir, þeas þeir sem ekki eiga herbergisfélaga (og reyndar Guy líka, þrátt fyrir að hann sé með Agli í herbergi) eru öll búin að bjóðast til að skipta við okkur meðan Daði er hérna svo við getum gist saman án þess að borga 7000 kall fyrir nóttina, en við sjáum til. Það er ekki ennþá búið að halda 6-um-morguninn brunakerfisæfingu eins og búið er að hóta, og ef hún verður haldin meðan við erum ekki í byggingunum okkar, að ég tali nú ekki um ef ég skrái Daða ekki inn sem gest, þá getum við lent í því að verða sektuð um 50 pund, og þá er nú meira vit í hinu. Ég finn út ur þessu öllu saman á endanum samt.

Ég er að hugsa um að horfa á smá meira Gilmore Girls núna. Ferðinni til Manchester var frestað, af því við þurfum öll á smá hvíld að halda, en John ætlar að reyna að fá mömmu sína, sem er stödd hérlendis, til að elda grískt fyrir okkur á morgun og svo var planið víst að fara í bíó, vonandi gengur það eftir. Annars ætla ég bara að læra smá og hafa það kósý.

Hafið það öll gott heima í kreppulandi og vonandi fer þetta allt saman batnandi úr þessu. Vil ekki sjá fleiri slæmar fréttir að heiman, heyriði það. Grey taugarnar mínar þola það ekki!

Þangað til næst;

Anna Margrét

1 comment:

Katrín said...

Magnað hvað skiptinemafélagslífið þarna viðrist allt snúast í kringum mat... ;)