Það var svo þegar tíminn var ca hálfnaður sem ég leit út um gluggann og sá þetta;
Ég fékk mér sæti við borð sem var merkt Íslandi en var merkilegt nokk undir norska fánanum, sá íslenski var lengra til vinstri, yfir borði fyrir Uppsala háskóla í Svíþjóð. Þar vatt sér að mér ungur strákur að nafni Jason, sem er Breti, en stundaði nám við Uppsala háskóla. Hann byrjaði á því að ræða það hvað allt væri ömurlegt á Íslandi akkúrat núna og það vildi örugglega enginn fara þangað. Ég horfði stíft á móti og sagði "...*ég* er frá Íslandi". Þetta var svona alvöru tala-illa-um-einhvern-sem-er-skyldur-þér móment, hann varð svo vandræðalegur greyjið. Svo fórum við að rökræða efnahagsástand Íslands og hvort það væri virkilega hægt að kenna hryðjuverkalögum um part af ástandinu. Hann vildi meina ekki og að Íslendingar væru bara að væla og kenna Bretum um þetta allt og ekki taka ábyrgð á ástandinu og við eyddum meiri tíma í að rökræða það heldur en að kynna, en undir lokin baðst hann samt afsökunar og við ákváðum að vera sammála um að vera ósammála.
Fyrir utan efnahagsrifrildi, sat ég og úðaði í mig nammi úr Halloween skál sem var heppilega staðsett á borðinu mínu, sagði þessum örfáum hræðum sem sýndu áhuga frá lífinu á Íslandi og lét þau hafa bækling með helstu upplýsingum um nám á Íslandi, og borðaði piparkökur sem Rob var allaf að ota að mér. Við Egill lentum líka í áhugaverðum samræðum við strák frá Tyrklandi sem er skiptinemi hér eins og við. Við spjölluðum saman um efnahagsástand í Evrópu meðal annars (ofsa einhæft umræðuefni alltaf hreint) en það var áhugavert að heyra í honum því samkvæmt honum gekk Tyrkland í gegnum svona lægð árið 2000 eða 2002 og er að koma sér upp úr henni núna og hann sagði að ástandið væri bara fínt þar núna, þótt það væri erfitt að fá lán út úr bönkum, og að þau hefðu ekki enn lent í neinum áhrifum frá þessari lægð sem er í gangi núna. Hann sagði okkur líka aðeins frá tyrknesku tungumáli og stafrófi, og samkvæmt honum þá þýðir nafnið "Anna" í Tyrklandi "Madonna" eða móðir Jesú, og það sem meira er þá þýðir orðið "anne" á tyrknesku "mamma", og einu sinni var orðið "anna" notað yfir "mamma" á tyrknesku. Þetta þótti mér stórmerkilegt, enda hef ég aldrei heyrt neinar aðrar útskýringar á nafninu mínu en þá hebresku. Það er skemmtilegt hérna úti að kynnast svona mörgum mismunandi skiptinemum frá mismunandi löndum, og mér finnst endalaust skemmtilegt að hlusta á þau segja frá tungumálunum sínum. Nokkrar myndir frá language fair;
Eftir þetta fórum við út, og tókum smá myndir af snjónum. Röltum líka bakvið Keele hall, þar sem var hægt að taka fallegar myndir. Ætla hér með að taka það fram að hann Egill á þessar myndir næstum alfarið, ég tók ekk margar af þeim og þær eru allar teknar á hans myndavél. Ég bara fékk þessar myndir af því að mín varð eftir heima í morgun.
Eftir þetta röltum við heim, rennandi blaut í fæturna, enda ekki gáfulegt að vera í næfurþunnum ballerínuskóm í þessu slabbi, og það var svo kalt að andardrátturinn hékk í loftinu. Ég fékk myndir og borðaði marsís og kveikti svo á tölvunni. Ég hlustaði á eitt lag í henni og eftir það kom jólalag. Og viti menn, ég leyfði því bara að rúlla. Er núna búin að hlusta á ca 5 eða 6 jólalög. Og mér finnst það bara allt í lagi...Það er nefnilega rosalega jólalegt úti núna, þegar það er farið að dimma (já klukkan 10 mínútur í 5!). Ég ætla að skrifa ritgerð, og smella svo kannski einhverri hálf-jólalegri mynd í tækið, held það sé alveg kominn tími til. Það er að koma nóvember, og þetta má í nóvember! Og ég má taka forskot, vegna þess að ég er ein úti og það lætur mér líða vel :) It's the rules that I've just made up...:)
Þangað til seinna, vonum að snjórinn haldi sér eða að það snjói meira!
Anna Margrét jólastelpa

No comments:
Post a Comment