Annars eru fleiri myndir úr ferðinni inni á facebook, svo endilega kíkið þangað.
Ferðasagan kemur svo bara á morgun. Við eyddum nóttinni í nýja herberginu hans Egils, og upp undir klukkan 2 í nótt ákváðu blokkarfélagar hans að finna upp nýjan leik sem heitir "skellum hurðunum". Þeir skelltu hurðum á fimm mínútna fresti og maður hrökk alltaf upp. Ég þurfti svo að vakna klukkan 8 til að fara og hitta Malcolm Crook og ganga frá málum varðandi frönskutímann sem ég er kannski að fara að taka en kannski ekki...Eftir það var röðin komin að Accommodation services. Ég náði mér í flensu í London og fékk alveg gjörsamlega nóg af því að deila herbergi í gærkvöldi þegar ég gat ekki verið veik í friði. Ég fór því niður í AS og spurði enn og aftur hvort eitthvað væri að frétta af herberginu mínu. Hún horfði svo illilega á mig að ég fékk smá samviskubit yfir því að vera alltaf að angra þær, en bara pínu. Ég horfði bara illilega á móti, og loksins loksins sagði hún að þær gætu ekkert gert fyrir mig persónulega, enda væri ég ekki að fara að flytja út, en þær gætu spjallað við herbergisfélöguna mína í dag ef hún færi og hitti þær. Ég skilaði því til Joséphine, við sjáum svo bara hvað setur með að fá herbergi. Kannski er þetta loksins loksins komið núna. En það verður örugglega ömurlegt herbergi, og ég er örugglega komin á Most Wanted lista hjá þeim núna. En mér er svosem sama, ég er í þrjóskuskapi!
Annars er yndislegt að hafa Daða hérna, ég er bara að vinna í því að ná mér upp úr flensunni svo ég geti farið með hann út um allt. Við fórum samt að versla í Morrisons í gær svo hann er aðeins búinn að sjá hvernig maður býr hérna. Þegar krakkarnir fóru svo að skella hurðum í gær sagði ég "Velkominn í heimavist." Hann er alveg orðinn alvöru hérna sko ;)
Í dag ætlum við vonandi að reyna að læra smá, til að ná að skúbba því af svo við höfum afganginn af vikunni lausa. Þá getum við bara farið í bíó og svona og á pub quiz í Sneyd Arms pöbbnum og á Hungry Horse að borða og svona. Og vonandi kannski verðum við komin með eigið herbergi ;)
Meira seinna. Set inn ferðasöguna á morgun þegar ég er í betra ástandi til að skrifa hana. Sofutími núna...
Anna Margrét

2 comments:
Æ, leiðinlegt að heyra að þú náðir þér í flensu, en þá er gott að hafa Daða hjá sér..
Geggjaðar myndirnar, ég ætla ekki að segja þér hversu mikið mig langar til að hoppa upp í flugvél akkúrat núna, en það er alveg
[ -------- svona -------- mikið -----------]
Annars vona ég bara að þið hafið það gott, hlakka til að lesa ferðasöguna :D
Vonandi er flensan bötnuð! Rosalega gaman að sjá þessar myndir. Allir biðja að heilsa:O)
Post a Comment