Smá myndasyrpa frá Wales. Eins og venjulega eru ennþá fleiri myndir á facebook. En þetta eru svona helstu myndirnar, og svo eru líka nokkrar myndir frá Triciu og Kate hérna líka;

Kirkjan í Welshpool.

Fórum inn í pínulitla hliðargötu sem reyndist vera full af litlum minjagripabúðum. Gatan hét "Hopkins passage".

Búð inni í Hopkins Passage. Ótrúlega sæt.

Yfirlitsmynd yfir Welshpool, tekin frá kirkjunni.

Tré í garðinum sem lá upp að kastalnum.

Bekkjarmynd af okkur Daða

Bekkjarmynd. Kate, ég, Daði, Rob og Tricia.

Riiisastórt tré. Stærsta tré sem ég hef á ævi minni séð. Þessir litlu flekkir neðst eru til samanburðar, það eru sko ég og Kate að faðma tréð...

...eins og sést betur á þessari nærmynd. Ég og Kate "treehuggers". Við ákváðum semsagt að sjá hversu vel við næðum utan um það. Eins og sést náðum við varla utan um helminginn á því.

Ég og Daði að labba upp að kastalnum.

Breiðasta tré sem ég hef á ævi minni séð. Ég þarna til samanburðar.

Ég að hlusta eftir trjáálfum.

Ég og Kate.

Ég að stelast til að taka myndir af dádýrahjörðinni. Það voru svona 10-15 dádýr þarna.

Rob að gera eitthvað undarlegt. Ég er nokkuð viss um að hann er að taka mynd. En við hlógum allavega mikið að honum þarna.

Kræklótta tréð. Eina tréð sem var ekki í fullum skrúða.

Trjábolsmynd. Egill, ég, Rob, Daði og Tricia.

Dádýrahjörðin.

Powis kastali.

Fallbyssan við innganginn.

Powis kastali séður frá "bakgarðinum".

Haustlitirnir ótrúlegir þarna.

"Bakgarðurinn"

Powis kastali!

Það var eldur einhvers staðar. Sáum bara reykinn af honum. Ræddum það lengi hvort við ættum að láta einhvern vita af honum, en komumst að þeirri niðurstöðu að "Æji einhvers staðar þarna bak við Powis kastala" væri ekki alveg nógu nákvæm lýsing fyrir slökkviliðið.
Daði er farinn eftir frábæra 10 daga í Englandi. Hans er sárt saknað. Skrifa meira seinna vegna þess að ég er að skrifa ritgerð núna...
Anna Margrét
1 comment:
Gaman að sjá ferðina svona í myndum líka. Æðislega fallegt umhverfi og líka fallegt fólk:)
Knús, kossar og kærar kveðjur frá okkur öllum,
Mamma
Post a Comment