Sunday, October 5, 2008

Alvöru háskólastúdent!

Ég var voðalega dugleg í dag. Ég vaknaði klukkan ellefu, fékk mér morgunmat og ákvað að kíkja á bókasafnið. Ég pakkaði fartölvunni og stílabókinni ofan í hliðartöskuna mína og bar öll þyngslin niður á bókasafn. Þegar þangað var komið spurði ég konu sem gekk fram hjá mér hvernig ég gæti fundið þessar milljón-og-eina bækur sem mig vantar fyrir disney kúrsinn.

Námið hér úti ef nefnilega aðeins öðruvísi en heima að því leitinu til að þú ræður algjörlega sjálfur hversu mikinn effort þú leggur í vinnuna. Ég er með tvo leslista. Á öðrum þeirra eru leikrit og ljóð (skyldulesning fyrir hvern tíma) og svo ítarefni um tímabilið, siðavenjur þess tíma og ljóð og leikrit almennt. Á hinum er vikunum skipt upp og hver vika (þeas hver tími) heitir eitthvað ákveðið. Undir titlinum koma svo nokkrar tillögur um efni sem lesa má til að fá góðan grunn fyrir tímann, alls konar ritgerðasöfn, heilar bækur, kaflar úr bókum o.s.fr. Þar að auki er ein aðalbók sem lesa á í, venjulegast 1-2 kaflar fyrir hvern tíma.

Ef ég vildi sleppa sem best út úr því að lesa, myndi ég lesa ljóðin, og leikritin og aðalbókina og mæta á alla fyrirlestra. En ég hef kosið að lesa ítarefni líka, ekki allt af þeirri einföldu ástæðu að ég gat ekki fundið sumar bækurnar á bókasafninu, en nóg til að ég hafi góðan grunn fyrir hvern tíma. Mér finnst það skynsamlegt með tilliti til þess að ég stefni á einkunn milli 60 og 69%.

En þar af leiðandi sat ég við tölvu á bókasafninu og fletti upp endalaust mörgum titlum, þrjár vikur fram í tímann (en það er eins langur tími og við megum hafa flestar bækurnar). Ég gekk svo um rangala bókasafnsins og reyndi að finna bækurnar, hægara sagt en gert. Ég get nú stolt fullyrt að ég rata frekar vel þarna inni. Þetta er rosalegt bókasafn, risastórt með bókum um allt milli himins og jarðar. Í sumum deildum er frekar drungalegt, maður er einn inni og ljósin eru með snertiskynjara, þeas skynja það að maður er að labba í gegnum ákveðnar hillur, en oft ekki fyrr en maður er kominn hálfa leið. Þar að auki eru stórir afgirtir ferhirningar, 1-2 í hverri deild sem stendur á að gólfið sé ekki þétt og öruggt á þeim svæðum. Eða með öðrum orðum; ekki labba þarna eða þú gætir dottið niður. Alveg þokkalega skuggalegt.

En mikið rosalega var þetta gaman. Ég fann næstum allar bækurnar sem ég ætlaði mér, leigði fimm þeirra og ljósritaði nokkra kafla upp úr öðrum, eins mikið og ég gat fundið þrjár vikur fram í tímann. Ég fer svo aftur í lok mánaðarins og geri mér aðra svona ferð. Disney kúrsinn er aðeins meiri vinna en hinn kúrsinn, en vel þess virði. Held þetta verði áhugaverðasti kúrs sem ég hef tekið hingað til. Og þið mynduð ekki trúa því hvað eru til margar bækur um þetta heimsveldi, jafnvel þótt ég sýndi ykkur ljósmyndir af hillunum. Hillur og fleiri hillur fullar af bókum um allt frá feminísma, yfir í marxisma, yfir í economisma yfir í guð má vita hvað, allt með tengslum við Walt Disney, eða Disney samsteypuna. Þetta var rosalegt.

Eftir að hafa eitt ca 1 og 1/2 klukkutíma þarna inni var ég orðin svöng og þreytt og fór því með bækurnar mínar 5 í fanginu (af því bókasafnið hefur enga poka) niður í students union búðina þar sem ég keypti mér spjöld (til að skipta möppunum niður í vikur og hafa ljósritin og glósur á réttum stöðum...svo skipulögð) og heftara og gatara, og svo í Harvey's að kaupa mér kartöflu með smjöri og osti (uppáhalds maturinn minn, og kostar bara 1 pund) og sprite. Þetta bar ég svo allt til baka aftur og alla leið upp á 2. hæð í M blokk, þar sem herbergið mitt er.Ég var svo stolt af sjálfri mér þegar ég kom aftur inn á herbergi, fannst ég hafa unnið alvöru þrekvirki. Ég get ekki beðið eftir að byrja að læra, sem er svoldið kjánalegt.

En því miður er ekki allt í paradís núna, vegna þess að eins mikið og ég og herbergisfélagan mín erum vinkonur, þá er plássleysið farið að segja til sín. Meðan ég var að klæða mig í morgun var hún að sýna fjölskyldunni sinni herbergið í gegn um webcam, án þess að vara mig við, og þegar ég kom með fangið fullt af bókum og drasli, kófsveitt og sársvöng, upp á herbergi, var hún að horfa á bíómynd með vini sínum inni í herbergi. Ég komst ekki á netið, gat ekki borðað inni í herberginu mínu, gat ekki einu sinni skipt um föt. Það er alveg kominn tími á að við fáum okkar eigin herbergi núna. Mig langar líka að byrja að læra, og hlakka til þegar klukkan verður 6, en þá fer hún í partý til vina sinna og þá ætla ég að fara í náttfötin og byrja að læra. Það verður kósý.

En þrátt fyrir alla þessa erfiðleika, erum við voðalega góðar vinkonur og sitjum saman á kvöldin og í eftirmiðdegið orðið og drekkum te í mesta bróðerni. Þetta er nú ekki svo slæmt. Ef herbergið væri stærra, með tveimur nettengingum og svona, þá væri ég meira en lítið til í að búa með henni allt árið þess vegna. En í svona litlu herbergi er okkur báðar farið að vanta personal speis.

Ég ætla að fara niður í accomodation services á morgun og spyrjast fyrir um þetta allt saman. Sjáum hvernig það fer.

Bless í bili,
Anna Margrét sem hlakkar til að fara að læra.

2 comments:

Anonymous said...

Ég skil vel að þú sért orðin pínu þreytt á nánd ykkar herbergisfélaga. En þetta fer nú að lagast.

Knús og kossar frá okkur öllum,
kveðja, mamma

Anonymous said...

Ohhh hvað þú átt gott að vera námsmaður í útlöndum. Það liggur við að ég öfundi þig! Gangi þér allt í haginn mín kæra.
Kristín Björg