Jæja, þá er ég búin að eyða öllu kvöldinu í að taka til og koma mér fyrir í nýja herberginu og nú er loksins orðið nógu fínt til að ég geti tekið myndir og sýnt ykkur sem eruð heima;

Þetta er Halloween skreytingin sem ég keypti í Morrisons í dag. Rosa fínt. Alvöru blóm og alles.

Svona lítur herbergið mitt þá út. Ekkert rosalega stórt, en heimilislegt. Mér finnst það allavega voða fínt :)

Herbergið mitt tekið úr hinum endanum. Nightmare Before Christmas á veggnum, og 101 classic movie quotes plakat á skápnum.

Hillurnar mínar sem eru yfir borðinu. Friends safnið, dvd, bækur, snyrtidót, spegillinn minn og heimilistækin þarna uppá.

Veggurinn minn. Uppáhalds parturinn minn af herberginu. Myndir af fólkinu sem mér þykir vænt um :)

Kommóðan mín. Þarna ofaná geymi ég glös, vatn, sprite, te og snyrtivörurnar mínar.

Rúmið mitt og bangsi að kúra þarna.
Og nú! Hvíld! Þetta tók alveg nokkra tíma...
Þreytukveðja,
Anna Margrét
2 comments:
Glæsilegt, þú hefur komið þér vel fyrir :D
Fyrrum herbergisfélagan þín vissi greinilega ekki hverju hún var að missa af ;o)
Hey töff, ég á líka svona 101 classic movie quotes plakat! Keypti það í Edinborg :P
Post a Comment