
Maður hélt að maður væri sloppinn við jarðskjálfta hérna í Bretlandi, en neinei. Fær maður ekki einn af tveimur skjálftum sem finnast á ári, rétt hjá sér. Ég er þarna á Stoke-on Trent svæðinu sem er efst uppi, og þessi rauði punktur markar upptök skjálftans. Til samanburðar þá er ég klukkutíma að taka rútu til Birmingham, þannig að þetta er ekkert rosalega langt í burtu frá mér. Hins vegar fór ég eiginlega bara að hlæja þegar ég sá þetta vegna þess að miðað við jarðaskjálftana sem maður hefur upplifað heima hefði bara verið fyndið að finna þennan :)
Ég fann hann samt ekki, ég var í bíó.
Stutt kveðja frá Keele,
Anna Margrét

1 comment:
Haha, mér varð einmitt hugsað til þess hvort þú hefðir orðið hans vör :D
Gott að heyra að þú hafir bara verið í bíó að skemmta þér :D
Post a Comment