Thursday, October 30, 2008

Ritgerðarskrif, ást og flugleiðir.

VARÚÐ; Fyrri hluti þessa bloggs fjallar bara um ritgerðir og efni þeirra og efni kúrsanna sem ég er að taka úti þannig að ef þér leiðist svoleiðis ráðlegg ég þér að spóla bara hratt áfram :)

Jæja, þá er daman búin að skila inn sinni fyrstu háskólaritgerð hérna úti. Eins og svo oft vill verða með kennara og kennslu almennt þá hefur verkefnunum verið hrúgað öllum á sama tíma, og nú koma ritgerðir trekk í trekk sem þarf að skrifa.

Í síðustu viku kláraði ég, og skilaði inn ritgerð í áfanganum Creative Writing sem ég er að taka í fjarnámi frá Fróni. Hún var um 1000-1200 orð. Í dag afhenti ég svo Roger Pooley mína fyrstu ritgerð hér úti, í Renaissance kúrsinum, og má búast við að fá hana til baka eftir tvær vikur. Reyndar gildir hún ekkert til lokaeinkunnar, en er engu að síður nauðsynleg til að ég fái að ná áfanganum og ég fæ hana til baka, vonandi með einkunn, en allavega með smá athugasemdum um skrifin. Hún mun svo gagnast mér í skrifum á 2000-3000 orða ritgerð sem ég á að skila í lok nóvember um Shakespeare og gildir 40-50% af lokaeinkunn. Spennandi! Allt sem við höfum gert fyrir viku 7 (vikuna eftir að ég kem aftur út frá Íslandsferðinni minni) telst til þessarar ritgerðar, og ég þarf ekki að pæla í því á lokaprófi (svona svipað og í Breskar Bókmenntir I heima fyrir þá sem eru að lesa þetta og eru í enskunni heima :)).

Í millitíðinni á ég að skrifa 1000 orða ritgerð fyrir Disney kúrsinn, eins konar kynningu á 2000-3000 orða ritgerðinni sem ég á að skila um miðjan desember. Fyrri ritgerðinni á ég að skila í viku 7, nánar tiltekið á fimmtudeginum í viku 7. Ég er nú þegar komin með hugmynd að ritgerð, en nú hefst vinnan við að finna mér heimildir og sjá hvort að hugmyndin mín stenst thesis-próf.

Þar að auki er ennþá eftir stór lokaritgerð í Creative writing kúrsinum sem ég á að skila á sama tíma og ritgerðinni úr Renaissance kúrsinum (27. nóvember).

Þetta, og þessi tvö lokapróf sem ég á líka að taka (og eru, merkilegt nokk, BÆÐI ritgerðarpróf...) gerir það að verkum að þessir þrír kúrsar sem ég er að taka núna eru á við 5 eða 6 kúrsa heima. Það er rosaleg vinna sem fellst í þessu, en þetta er líka pínu gaman, þótt maður geti nú alveg fengið nóg af ritgerðasmíð. En þetta er þá allavega góð æfing í aga og skrifum fyrir BA-ritgerðina, og maður lærir svosem helling. Ég ætla að taka MLA-writing bókina með mér þegar ég fer aftur út af þvi ég finn á mér að hún eigi eftir að koma mér að góðum notum. Ef það er eitthvað sem ég er búin að læra á dvöl minni hérna úti, svona námslega séð, þá er það hvernig á að búa til Thesis Statement. Ég verð alveg hamingjusöm þótt ég heyri aldrei orðin "Thesis Statement" framar.

Í Renaissance ritgerðinni minni sem ég var að skila inn bar ég saman sonnetu númer 112 eftir Shakespeare og sonnetu númer 1 eftir T.W. úr sonnetturöðinni "Tears of Fancie". Tears of Fancie sonnetturöðin er skrifuð út frá manni sem hefur engan áhuga á ást og telur sig yfir hana hafinn, en endar á því að vera hundeltur af Cupid og Ástinni (persónugervingar þess að verða ástfanginn). Mér fannst þessi ákveðna sonnetta áhugaverð af því hún sýndi mann sem gerði grín að ástföngnu fólki síns tíma, en notaði samt sama miðil til að gera það og þeir sem sömdu ástarljóð til elskunnar sinnar (þeas; Sonnettuna) og það var gaman að bera hana saman við sonnettu sem er skrifuð út frá sjónarhorni þess sem er ástfanginn, og fjallar um það hvernig honum er alveg sama þótt allir geri grín að honum fyrir að vera ástfanginn, honum komi bara við hvað manneskjunni sem hann elskar finnst um hann. Þetta var áhugaverð ritgerð og það var gaman að skrifa hana. Ég vona bara að hún hafi verið nógu góð, en ég hef svosem ekkert miklar áhyggjur af henni.

Ég veit ekki hvernig ritgerðarefnin eru fyrir löngu Renaissance ritgerðina, aðallega vegna þess að WebCT vill ekki birta þau fyrir mig. En við eigum að bera saman einhver tvö verk sem við höfum verið að læra um og svo eru einhverjir ákveðnir hlutir sem við eigum að skrifa um. Ég er að vonast til þess að það sé samanburðarritgerð milli As you Like it og Midsummer Night's Dream af því það eru uppáhalds leikritin mín. Love's Labour's Lost er LEIÐINLEGT leikrit, bara svona svo þið vitið það fyrir fram, eina leiðinlega leikritið sem ég hef lesið eftir shakespeare (held hann hafi bara verið blankur þegar hann skrifaði það greyjið) og ég hef ekki ennþá lesið Twelfth Night (það er fyrir næstu viku) en ég sat fyrirlestur um það í dag og það hljómaði ekkert rosalega skemmtilegt. Hin eru skemmtilegri.

Creative Writing ritgerðin á að fjalla um Of Mice and Men. Ég tók bókina á bókasafninu og er að byrja á henni. Þetta er góð bók og það verður ekkert leiðinlegt að gera þetta verkefni, ég er bara aðeins lituð af óánægju minni með þennan ákveðna kúrs, hann er mjög undarlegur, og þess vegna hlakka ég bara til þegar ég er búin að skila inn þessari ritgerð og er búin með kúrsinn. Frekar blah svona.

Að lokum er Disney kúrsinn. Þar er ritgerðarefnið frjálsara. Það er bæði skemmtilegra og erfiðara, af því maður veit í rauninni ekki hvernig ritgerðarefni Dr. Mills er að búast við. Ég er samt eiginlega búin að ákveða mitt, ég er að hugsa um að taka fyrir 1-2 disneymyndir sem eru byggðar á klassískum ævintýrum og fjalla ítarlega um það af hverju það var nauðsynlegt fyrir Disney að breyta þeim og gera þau "barnavænari". Ég ætla svo að tengja það við ímyndina hans, sérstaklega í tengslum við garðana. Þetta er í beinni tenginu við það sem við höfum verið að hamra á síðastliðnar vikur svo ég held að þetta sé nógu gott efni til að virka. Ég hlakka mest til að skrifa þessa ritgerð, en kvíði líka mest fyrir niðurstöðunni. :)

En nóg um skólann...þetta hlýtur að hafa verið mjög þurr og leiðinleg lesning. Fyrir utan skólann er nefnilega ýmislegt að gerast hérna í lífi skiptinemans. Í gær fórum ég og Kate í bæinn og ákáðum að fara í búningum á Halloween sem er á morgun. Ég keypti mér einfalda(en óóógeðslega flotta) ódýra svarta hælaskó, háa svarta hanska, svarta hárkollu (sem ég er reyndar eitthvað að endurskoða, sjáum til hvort ég nota hana) og sígarettumunnstykki (án sígarettu að sjálfsögðu ;)). Ég ætla að fara sem Audrey Hepburn í Breakfast at Tiffany's. Ég er með kjól sem virkar með mér og við Kate ætlum að redda einhverju hálsmeni. Kate keypti sér þverslaufu, kattaeyru, kattaskott, svart pils og svartan og hvítan bol. Hún ætlar sem "Le Chat" úr Looney Toons. Á þessum tímapunkti er kannski ágætt að taka fram að við Kate erum að fara á frumsýningu James Bond hér inni í Newcastle á morgun, svo það ætti að vera skrautlegt. Sem betur fer er Halloween samt alveg eitthvað smá dæmi hérna úti, og ég get lofað að við verðum ekki þær einu sem verðum í búningum. Ég hef góðar heimildir fyrir því að Rob ætli líka að fara í búning. Og ég skal lofa að taka myndir fyrir ykkur heima :)



Audrey Hepburn sem Holly Golightly í Breakfast at Tiffany's. Ég verð ekki alveg svona fín, en vonandi eitthvað í áttina.
Le Chat og Pepé Le Pew. Þetta er nokkurn veginn Le Chat nema hún er líka með þverslaufu. Kate verður svona fín á morgun.

Auk þessa kom ég líka heim í gærkvöldi og mætti nokkrum blokkarfélögum mínum á leiðinni út. Þau höfðu setið allt kvöldið og skemmt sér við að skera út andlit á grasker. Ég elti þau út og náði frábærum myndum af því þegar þau voru að kveikja í pappír inni í graskerinu og eldur kom út um augun. Því miður eru myndirnar aðeins inni á símanum en ég set þær inn eftir að ég stoppa á Íslandi og næ í snúruna til þess :) Við skemmtum okkur svo með graskerið í góða stund og nú á það heima í eldhúsglugganum mínum undir miða þar sem stendur "Made by Sarah! Funded by Amara". Það glottir við manni þegar maður kemur heim úr tímum, sem er ekki slæmt, smá skemmtilegt.

Af öðrum hátíðum að segja þá er Bonfire Night 5. nóvember (2 dögum áður en ég kem heim). Flestir sem hafa séð V for Vendetta myndina vita hvað Bonfire Night er (Remember remember, the 5th of november, gunpowder treason and plot...) en á Bonfire Night (eða Guy Fawkes day) er meðal annars skotið upp flugeldum til að minnast þess þegar Houses of Parliament voru næstum sprengdar í loft upp. Nokkrir hafa verið að taka forskot á sæluna og mér líður svolítið eins og ég sé heima á Íslandi í vikunni milli jóla og gamlárskvölds, þegar maður fær svona impromptu flugeldasýningar þegar maður býst ekki við því. Ég vona að það verði eitthvað um flugeldaspreningar þarna 5. nóvember, en það eiga víst að vera brennur út um allt og svona. Það verður gaman, svoldið eins og að upplifa gamlárskvöld aðeins of snemma. Snjórinn er því miður farinn, annars gæti maður svosem platað sjálfan sig, en það er spáð meiri snjókomu og ég vona að það gerist. Í gær var okkur sagt af tveimur eldri konum sem voru að afgreiða í búð, að þetta hefur aldrei gerst svona snemma á þessu svæði. Þau bara þekkja varla snjó, og aldrei í október. Við Kate vildum meina að þetta væri okkur að kenna :)

Þetta er nú orðið ágætis blogg svona, og efast um að nokkur hafi nennt að lesa þetta allt, en áður en ég fer að leggja mig og horfa á Friends verð ég aðeins að segja frá skemmtilegheitum sem ég lenti í áðan. Í miðju krepputali og fréttum um að flugfélög séu að fara á hausinn, þá var mér ekki lítið brugðið að fá e-mail frá Icelandair þar sem stóð skýrum stöfum í subject línunni; "Þjónustubreytingar er varða þitt flug". Ég sá fyrir mér breytingar á flugi, að komast jafnvel ekki heim til mín, ég var alveg komin í panikk. En svo opnaði ég póstinn og þá var þetta bara tilkynning um að þeir séu að breyta matseðlinum og ég fái samloku að eigin vali þegar ég flýg heim, auk þess að fá að velja sjónvarpsefnið mitt. Ég íhugaði eitt andartak að senda þeim e-mail og skamma þá fyrir að hræða úr manni líftóruna, en ákvað svo að ég nennti því ekki og fór að blogga í staðinn. Mikið er ég fegin að ég er að koma heim, og að það eru engar breytingar varðandi það flug.

Og með þessum skemmtilegu fréttum ætla ég að kveðja að sinni, það er komin helgi hjá mér og tími til þess að slappa af og leggja sig.

Kær halloweenkveðja frá Bretlandi,
Anna Margrét (sem kann ekki að skrifa íslensku lengur).

4 comments:

Anonymous said...

ég las allt:D

Anonymous said...

ég las líka allt:)

Anonymous said...

þetta var ég mamma þín:)

Anonymous said...

Ég skil þig svo með þessar ritgerðir. En ég gæfi ansi mikið fyrir að skrifa Disney ritgerð, það er svo miklu meira sjarmerandi en Áhrif nútímavæðingar á íslenska löggjöf.
Farðu vel með þig þarna úti í öllum "snjónum".
Knúsíkram.